Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði milli áranna 2012 og 2013. Þetta kemur fram í nýjum Hagtíðindum sem Hagstofa Íslands gefur út.

Í fiskveiðum og -vinnslu lækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 30% í 26,5%, lækkaði í fiskveiðum úr 25% árið 2012 í 20,1% af tekjum árið 2013 og lækkaði í fiskvinnslu úr 17,2% í 17%.

Hreinn hagnaður (EBT) í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 18% árið 2013 samanborið við 21,5% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 49 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 23,1 milljarðar.

Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan 22,4% hagnaður 2013 eða 60,7 milljarðar, samanborið við 17,5% hagnað árið 2012, enda gætir ekki beinna áhrifa af breytingum á gengi við mat á fjármagnskostnaði sé árgreiðsluaðferðin notuð.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2013 tæpir 530 milljarðar króna, heildarskuldir rúmir 380 milljarðar og eigið fé rúmir 149 milljarðar.