Hagnaður á fyrri árhelmingi er töluvert minni en vonir stóðu til hjá Pernod Ricard, öðru stærsta áfengisfyrirtæki heims, segir í Financial Times. Tengist þetta m.a. kaupum fyrirtækisins á Allied Domecq og auknum auglýsingakostnaði á frönskum markaði.
Samfara kaupunum náði Pernod Ricard í einkaleyfi til að selja Stolichnaya vodka út um allan heim. Einkaleyfið kostaði um 100 milljónir evra. Rússneski vodkinn kemur frá SPI, heimsins stærsta framleiðanda rússavodka. Allied Domecq hafði verið með leyfið frá nóvember 2004.
Heildartekjur Pernod Ricard lækkuðu um 7,2% eða 157 milljónir evra, 20 milljónir evra umfram kostnaður er tengdur kaupunum á Domecq. Kaupin á þessum breska samkeppnisaðila Pernod kostuðu um 11,2 milljarða evra.
Hagnaður PR var undir væntingum og féllu bréf fyrirtækisins um 2,9% í gærmorgun gengu þau kaupum og sölum fyrir 145,5 evrur.
Rekstrartekjur hækkuðu um 2,1% eða 288 milljónir evra en þá á eftir að reikna inn neikvæðan gjaldeyrismismun. Hagnaður þessa franska fyrirtækisins jókst á erlendum mörkuðum en stóð í stað í Frakklandi. Þó bentu talsmenn þess á söluaukningu á viskí-, romm- og vodkategundum í Frakklandi. Þar fór auglýsingakostnaður einnig langt fram úr áætlunum og lækkaði rekstrartekjurnar.
Aukning í rekstrartekjum hjá PR voru mestar á Bandaríkjamarkaði, 19,7%. Söluhæstu víntegundirnar þar voru Jameson, Chivas, The Glenlivet og Wild Turkey.
Jafnframt því að krækja í einkaleyfið á Stolichnaya hefur Pernod Ricard lýst yfir áhuga á að kaupa framleiðslu þess af SPI ef þeir vilja selja. Sala á þessari ódýru vodkategund hefur dregist saman í seinni tíð á meðan dýrari vodkategundir eins og Absolute taka sífellt stærri köku af markaðnum. Rússneski vodkinn er enn vinsæll í Bandaríkjunum, hann er þriðja söluhæsta tegundin og fylgir fast á hæla Smirnoff og Absolute.