Dregið hefur úr jákvæðni Íslendinga gagnvart erlendum ferðamönnum upp á síðkastið ef tekið er mið af nýrri könnun MMR á viðhorfi Íslendinga til þeirra gesta sem hingað sækja. Á síðustu þremur árum hefur dregið nokkuð úr jákvæðni. Samkvæmt könnuninni sem lauk 21. júlí á þessu ári, voru 64,1% Íslendinga jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum samanborið við 67,7% árið 2016 og 80% árið 2015.

Almennt virtist þó meirihluti Íslendinga jákvæður gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi, þó má að mati MMR sjá mun á viðhorfi eftir lýðfræðihópum. Karlar voru til að mynda líklegri að vera jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum en konur. 70,5% karla voru jákvæðir en einungis 57,5% kvenna.

Framsóknarmenn svartsýnastir

Fólk sem búsett var á höfuðborgarsvæðinu var einnig jákvæðara en fólk sem búsett var á landsbyggðinni gagnvart erlendum ferðamönnum. 67,5% þeirra sem búsett voru á höfuðborgarsvæðinu voru jákvæð gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi, borið saman við 58% þeirra sem búsett voru á landsbyggðinni.

Þeir sem voru með hærri heimilistekjur voru jafnframt jákvæðari en þeir sem voru með lægri heimilstekjur. Einnig mátti sjá mun á viðhorfi til erlendra ferðamanna eftir stuðningi við mismunandi stjórnmálaflokka. Þar kom í ljós að stuðningsfólk Samfylkingarinnar var sá hópur sem var hvað jákvæðastur gagnvart erlendum ferðamönnum, eða 89,1%. Á móti var stuðningsfólk Framsóknarflokksins sá hópur sem var minnst jákvæðastur gagnvart erlendum ferðamönnum, eða 47,6%. Jafnframt var stuðningsfólk Framsóknarflokksins líklegasti hópurinn til að vera neikvæður í garð erlendra ferðamanna á Íslandi, eða 22,7%.

Könnunin var framkvæmd 18. til 21. júlí og var úrtakið einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Svarfjöldinn var 909 einstaklingar, 18 ára og eldri.