Sala áfengis í febrúar var 0,3% minni en í febrúar í fyrra skv. tölum frá Vínbúðinni. Sala á léttum vínum jókst þó á milli ára.

Þannig jókst salan á rauðvíni um 6% og salan á hvítvíni um 12%. Sala hefur hins vegar dregist nokkuð saman í sterku víni eða um tæp 11%. Þá hefur sala á bjór minnkað um tæp 2% á milli ára.