Farþegar sem fóru um Keflavíkurflugvöll í júlí voru 292.992 talsins. Í sama mánuði í fyrra voru þeir 309.004 og fækkar því um 5% milli ára.

Þetta kemur fram í tölum frá flugvellinum.

Mest fækkar hlutfallslega í hópi skiptifarþega, um 14,5% milli ára. Komufarþegum fækkaði um 3,2% í júlímánuði borið saman við sama mánuð ársins 2007 og brottfararfarþegum fækkaði um 2,3%.

Farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll hefur fækkað um 1,6% það sem af er þessa árs.