Velta á fasteignamarkaði lækkaði í fyrsta skipti í fjórar vikur en veltan nam um 3,3 milljörðum króna í síðustu viku og lækkaði um 11% milli vikna. Í fyrri viku nam veltan rúmlega 3,7 milljörðum króna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið var 97 en voru 111 í vikunni þar áður.

Meðalvelta á hvern samning hækkar þó og er 34,4 milljónir en var 33,9 milljónir króna samkvæmt FMR. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Þinglýstir samningar eru að meðaltali 86 á viku frá áramótun. Ef litið er til ársbreytingar á veltu hefur kaupsamningum fækkað um 40%

Á meðfylgjandi línuriti má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu nokkurra vikna og breytinga á henni milli ára.