Alls var 99 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu frá 5. desember til og með 11. desember. Heildarveltan var 3.675 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,1 milljón króna. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands .

Gerðir voru 79 samningar um eignir í fjölbýli, 16 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var nokkuð undir meðaltali síðustu tólf vikna, sem nemur 4.781 milljónum króna.