Heildarvelta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu frá 6. til 12. febrúar sl. nam 3.597 milljónum króna. Þetta kemur fram í tölum frá Þjóðskrá Íslands .

Alls var gerður 81 samningur um eignir í fjölbýliu, 21 samningur um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Meðalupphæð á hvern samning nam 32,7 milljónum króna.

Heildarveltan er nokkuð undir meðaltali síðustu tólf vikna, sem nemur 4.461 milljón króna.