Heildarvelta á fasteignamarkaði nam 18,5 milljörðum króna á höfuðborgarsvæðinu í desember og var meðalupphæð á hvern kaupsamning 40,5 milljónir króna. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands .

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin var 457 í mánuðinum. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 12,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 3,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,6 milljörðum króna.

Þegar desember 2014 er borinn saman við nóvember 2014 fækkar kaupsamningum um 23,6% og velta minnkar um 27,1%. Í nóvember 2014 var 598 kaupsamningum þinglýst, velta nam 25,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 42,5 milljónir króna.