Hagvöxtur í Bretlandi mældist 0,2% á öðrum ársfjórðungi af því er fram kemur á vef Hagstofu Bretlands. Er þetta í samræmi við brágðabirgðartölur sem birtar voru í júlí. Á fyrsta ársfjórðungi mældist hagvöxtur í Bretlandi 0,5%. Á öðrum ársfjórðungi árið 2010 mældist hagvöxturinn 0,7%.

Verðbólga í Bretlandi jókst úr 4,2% í 4,4% frá júní til júlí. Verðbólgumarkmið þar í landi er 2%.