Í kosningunum til Alþingis sem fram fóru 27. apríl 2013 voru alls 237.807 á kjörskrá eða 73,7% landsmanna. Af þeim greiddu 193.828 atkvæði eða 81,5% kjósenda sem var minnsta kosningaþátttaka í alþingiskosningum síðan 1942. Þetta kemur fram í nýjum Hagtíðindum útgefnum af Hagstofu Íslands.

Kosningaþátttaka kvenna var 81,9% en karla 81,1%. Við kosningarnar greiddu 32.199 manns atkvæði utan kjörfundar eða 16,6% kjósenda en sambærilegt hlutfall var 12,5% í kosningunum 2009.

Í kosningunum buðu fimmtán stjórnmálasamtök fram lista þar af ellefu í öllum kjördæmum. Af 1.512 frambjóðendum á landinu öllu voru 879 karlar eða 58,1% og 633 konur, 41,9%. Í þremur efstu sætum framboðslistanna var hlutfall kvenna 41,2%. Af kjörnum þingmönnum voru 38 karlar eða 60,3% og 25 konur, 39,7% og fækkaði kjörnum konum um tvær frá kosningunum 2009.

Úrslit kosninganna 27. apríl 2013 urðu þau að gild atkvæði voru 189.023 (97,5%), auðir seðlar 4.217 (2,2%) og aðrir ógildir seðlar 582 (0,3%).

Sex stjórnmálasamtök hlutu hvert um sig meira en 5% atkvæða og kjörna fulltrúa á þing. Björt framtíð hlaut 8,2% atkvæða og sex menn kjörna, Framsóknarflokkur hlaut 24,4% gildra atkvæða og 19 menn kjörna, Sjálfstæðisflokkur 26,7% og 19 þingmenn, Samfylkingin 12,9% og níu þingmenn, Vinstrihreyfingin — grænt framboð 10,9% og sjö þingmenn og Píratar fengu 5,1% atkvæða og þrjá þingmenn. Önnur stjórnmálasamtök fengu samtals 22.300 atkvæði sem svarar til 11,8% gildra atkvæða.