Fjárhagsstaða stærstu sveitarfélaga landsins batnaði almennt á milli áranna 2012 og 2013. Sex stærstu sveitarfélögin, þ.e. sveitarfélög sem hafa fleiri en tíu þúsund íbúa, skulda samtals tæpa 443 milljarða króna sem er lækkun úr tæpum 478 milljörðum árið 2012. Þrátt fyrir batnandi stöðu þá skulda þrjú af sex stærstu sveitarfélögunum meira en 200% af tekjum sínum og einungis tvö þeirra skulda minna en 150% af tekjum sínum, en það er viðmið um skuldahlutfall sem kveðið er á um sveitarstjórnarlögum. Rekstrarniðurstaða Akureyrarbæjar batnaði mikið á árinu 2013.

„Að sjálfsögðu er ég ánægður með afkomu ársins 2013. Við erum að sjá veltufé frá rekstri aukast og skuldastöðuna batna. Þannig lækkuðu heildarskuldir sveitarfélagsins um einn milljarð króna á árinu,“ segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar. „Góða afkomu á árinu 2013 og betri stöðu sveitarfélagsins má m.a. skýra með auknum tekjum, gengisþróun og lágri verðbólgu auk þess sem virkt aðhald hefur verið í öllum rekstri. Allt frá hruni hefur verið gætt ítrasta aðhalds í öllum rekstri en með auknum hagvexti sjáum við fram á að hægt verði að bæta í og auka þjónustu og horfum við fyrst til velferðar- og skólamála,“ segir Guðmundur.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .