Nemendur í meistaranámi við Háskólann í Reykjavík geta nú tekið námskeið á meistarastigi í fjarnámi í MITx og fengið þau metin til eininga við HR.

Tvær námsleiðir eru í boði.  Annars vegar er um að ræða nýja námsleið MITx á sviði gagnagreiningar (e. Statistics and Data Science), sem samanstendur af fjórum námskeiðum. Hins vegar er um að ræða námsleið á sviði stjórnunar aðfangakeðja (e. Supply Chain Management) sem samanstendur af fimm sjálfstæðum námskeiðum. Öll námskeið eru kennd af sérfræðingum MIT og eru sambærileg við námskeið sem kennd eru í staðarnámi við MIT tækniháskólann í Boston. Námskeiðin eru öllum opin og ekki er gerð krafa um formlega undirbúningsmenntun.

Námskeiðin henta fólki í atvinnulífinu sem vill bæta við sig hagnýtri þekkingu og eiga um leið möguleika á að nýta námskeiðin sem hluta af meistaranámi við HR, MIT, eða aðra háskóla sem bjóða upp á  þessar námsleiðir. Nemendur sem eru að hefja, eða eru í meistaranámi í tölvunarfræði, viðskiptafræði eða upplýsingastjórnun HR, geta lokið námsskeiðunum á netinu og fengið þau metin sem hluta af sínu námi. Fyrsta námskeiðið á sviði stjórnun aðfangakeðja hefst 27. júní næstkomandi og það fyrsta á sviði gagnagreiningar 3. september.

Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR segir: „Við leggjum mikla áherslu á stöðuga framþróun í öllu námi, bæði í innihaldi og aðferðafræði, til að tryggja samkeppnisforskot okkar nemenda.  Miklar og örar breytingar á sviðum tækni og viðskipta krefjast nýrra námsleiða til að veita nauðsynlega þekkingu og færni. Við erum því sérstaklega ánægð með geta boðið upp á þessar námsleiðir frá MITx. Eftirspurn eftir sérfræðingum í greiningu gagna fer ört vaxandi á öllum sviðum samfélagsins. Góð stjórnun aðfangakeðja skiptir fyrirtæki einnig gríðarlegu máli, ekki síst hér á Íslandi vegna inn- og útflutnings.“