Gengi hlutabréfa Marel lækkaði um 0,37% í tiltölulega litlum viðskiptum upp á rétt rúma hálfa milljón króna. Þá lækkaði gengi hlutabréfa Icelandair Group um 0,14%.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Haga um 0,52%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,24% og endaði hún í 991,7 stigum. Aðeins rúmlega 94 milljóna króna velta var með hlutabréf í Úrvalsvísitölunni í dag samanborið við tæplega 630 milljóna króna veltu í gær.

Vísitalan tók gildi á Nýársdag árið 2009 og stóð í 1.000 stigum á fyrsta degi.