Ávöxtunarleiðir Almenna lífeyrissjóðsins skiluðu allar mjög góðri ávöxtun árið 2006 að því er kemur fram í frétt á heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóða. Tryggingadeild sjóðsins skilaði 13,4% raunávöxtun.

Ævisafn 1, sem er með 80% af fjárfestingu sinni í hlutabréfum, skilaði 13,8% ávöxtun.  Þessi góða ávöxtun skýrist af hækkun á innlendum og erlendum hlutabréfum. Heimsvísitala erlendra hlutabréfa hækkaði um 20,1% í dollurum en um 36,6% í íslenskum krónum þar sem íslenska krónan veiktist um 13,8% gagnvart dollar. Vísitala aðallista Kauphallar Íslands hækkaði um 15,2% á síðasta ári.


Ávöxtun skuldabréfa sjóðsins var hins vegar lág þar sem sjóðurinn metur skuldabréfin á markaðsverði. Viðmiðunarvísitala skuldabréfa Ævisafna I og II hækkaði um 7,5% á árinu sem er einungis um 0,5% umfram hækkun vísitölu neysluverðs.

Lífeyrisdeild greiðir ævilangan ellilífeyri til sjóðfélaga og ávaxtar eignir sínar í skuldabréfum. Raunávöxtun safnsins var 2,7% ef skuldabréfin eru metin miðað við markaðsvexti. Ef skuldabréfin eru metin á kaupkröfu eins og flestir aðrir lífeyrissjóðir gera var raunávöxtun safnsins 5,7% (nafnávöxtun 13%).

Í árslok 2006 námu heildareignir Almenna lífeyrissjóðsins 82,7 milljörðum króna og stækkaði sjóðurinn því um 18,7 milljarða eða um 29% á árinu. Sjóðfélagar í árslok voru 29.446 og fjölgaði þeim um 4.389.