Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland stóð í stað í dag og endaði í 1,833 stigum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa VÍS um 0,76% í 141 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa TM hækkaði um 0,86% í viðskiptum sem hljóðuðu upp á 94 króna. Einnig hækkaði gengi bréfa Eikar um 1,17%, en þó aðeins í 30 milljón króna viðskiptum.

Þess ber að geta að gengi bréfa Icelandair stóðu í stað þrátt fyrir tæplega 195 milljóna króna viðskipti.

Mest lækkaði gengi bréfa Marel um 0,44% í 54 milljóna króna viðskiptum. Þar á eftir kemur N1, en gengi bréfa fyrirtækisins lækkaði um 0,92% í viðskiptum upp á 44 milljónir króna.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 756 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 0,6 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 2 milljarða viðskiptum.

Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 0,7 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 1,4 milljarða viðskiptum.