10% Norðmanna kjósa að drekka mjólk með pitsu og margir drekka einnig mjólk með mexíkóskum réttum og hamborgurum. Þetta sýnir ný könnun á mjólkurvenjum Norðmanna sem mjólkursamlag þeirra, TINE, lét gera fyrir skemmstu. Frá þessu var greint í frétt á heimasíðu Landssambands kúabænda. Einnig kemur fram í könnuninni að tvöfalt fleiri karlar en konur vilja mjólk með áðurnefndum réttum. Mun fleiri karlar en konur vilja þar að auki mjólk með kvöldmatnum.

Meira en helmingur íbúa norðurhluta Noregs vilja drekka mjólk með pönnukökum og sú samsetning er einnig vinsæl í suður- og austur Noregi. Það er Margrét H. Guðmundsdóttir, fréttaritari LK í Noregi, sem sendi inn fréttina.