Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að nýr búvörusamningur komi til með að auka framleiðni í landbúnaði og nýtast bæði neytendum og bændum. RÚV greinir frá.

Bjarni segir að mjólkurbændum hafi fækkað um tæp 70% á síðustu 20 árum og að sú þróun muni halda áfram. Nýi búvörusamningurinn sem um ræður var undirritaður í síðustu viku og gildir til 10 ára. Samkvæmt honum aukast framlög ríkisins til landbúnaðarins um 900 milljónir króna á næsta ári en fara svo lækkandi á samningstímabilinu.

Samningurinn hefur vakið mikið umtal og hafa þingmenn úr liði Sjálfstæðisflokksins margir hverjir lýst yfir andstöðu sinni við hann. Bjarni er þó ekki jafn neikvæður í garð samningsins.

„Heilt yfir þá eru samningarnir til þess fallnir að auka framleiðni í landbúnaði og ég tel að þessi samningar muni bæði nýtast bændum og íslenskum neytendum,“ segir Bjarni.

„Það eru ekki nema um 20 ár síðan við vorum með tæplega 2.000 mjólkurbændur, um 1850 mjólkurbændur, sem eru um 650 í dag og það eru allir sammála um að sú þróun muni halda áfram, þannig að búin haldi áfram að stækka og framleiðslukostnaður pr. framleiddan lítra heldur áfram að lækka. Þetta nýtist neytendum í landinu með ótvíræðum hætti, en líka bændum.“