Samkvæmt nýju yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var mjólkurframleiðslan í maí svipuð og í fyrra, eða 10,4 milljónir lítra. Í hönd fara nú sumarmánuðirnir og miðað við óskir mjólkuriðnaðarins um kaup á umframmjólk er ljóst að framleiðslan má ekki verða minni en á sama tíma í fyrra. Samtals hafa nú verið framleiddir 83,6 milljónir lítrar mjólkur og þarf framleiðslan í júní, júlí og ágúst því að skila amk. 28,9 milljónum lítrum mjólkur ef framleiða á alla þá mjólk sem iðnaðurinn hefur kallað eftir, sem eru 112,5 milljónir lítra.

Greiðslumarkið verðlagsárið 2004/2005 er 106 milljónir lítra og þarf því hver mjólkurframleiðandi að jafnaði að framleiða 6,1% umfram sitt greiðslumark svo að tryggt sé að iðnaðurinn fái þá mjólk til vinnslu sem óskað hefur verið eftir.