Út er komið fyrsta verðmat Greiningar ÍSB á Actavis eftir kaup félagsins á bandaríska samheitalyfjafyrirtækinu Amide Pharmaceuticals. Niðurstaða verðmatsins er 1.906 m.evra. Umreiknað í krónur miðað við gengi evru 78,8 er verðmatið 150,2 ma.kr sem gefur verðmatsgengið 45.

"Á grundvelli verðmatsins mælum við með að fjárfestar kaupi bréf í Actavis. Er það ráðgjöf okkar til lengri tíma litið. Við mælum með að fjárfestar yfirvegi bréf Actavis í eignasöfnum sem taka mið af íslenska markaðinum og er það skoðun okkar til skemmri tíma litið," segir Greining Íslandsbanka.