Greiningardeild Landsbankans verðmetur gengi Straums-Burðaráss á 17,6 krónu á hlut í verðmati sem birtist í dag. Markaðsgengi fjárfestingarbankans er 17 krónur á hlut, samkvæmt upplýsingum frá M5.

Mælir greiningardeildin með því fjárfestar kaupi bréf í fjárfestingarbankanum og markaðsvogi í vel dreifðu eignarsafni.

?Straumur-Burðarás hefur á skömmum tíma breyst úr hlutabréfasjóði í fjárfestingarbanka. Stöðutaka er þó enn stór hluti starfseminnar. Óljóst er hvernig bankinn hyggst nýta sterka eiginfjárstöðu, en reksturinn stendur mun betur undir markaðsvirði en í byrjun árs,? segir greiningardeildin.

Hún bendir jafnframt á að gengi fjárfestingarbankans hafi ekki fylgt verðhækkunum úrvalsvísitölunnar.