Greiningardeild Landsbankans metur gengi Bakkavarar Group á 67,5 og tólf mánaða markgengið á 74,8 krónur á hlut. Markaðsgengið er 69,9 krónur á hlut við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Mælir hún með að fjárfestar minnki við sig í félaginu en markaðsvogi bréfin.

?Við reiknum með áframhaldandi velgengni hjá Bakkavör og gerum ráð fyrir nokkuð sterkum öðrum fjórðungi.
Páskarnir féllu á annan ársfjórðung að þessu sinni en að jafnaði er talsverð söluaukning í kringum páskana, auk þess sem vörur með háa framlegð seljast vel þá. Jafnframt var veður gott í Bretlandi á öðrum fjórðungi og því fylgir aukin sala á salötum og léttari réttum,? segir greiningardeildin.