Greiningardeild Landsbankans mælir með því að fjárfestar minnki við sig í Icelandic Group en markaðvogi bréfin. Metur hún gengi félagins á 6,22 og markgengið á 7,18 krónur á hlut. Markaðsgengið er 6,4 krónur á hlut, samkvæmt upplýsingum frá M5.

"Endurskipulagning hefur staðið yfir á rekstri Icelandic Group á síðustu tveim árum og vonir standa til að árangur af henni skili sér fljótlega og hafi jákvæð áhrif á rekstrarafkomu á næstu árum. Við gerum ráð fyrir því að félagið dragi á næstu árum úr skuldsetningu sinni og minnki birgðir sem hefur jákvæð áhrif á sjóðstreymi og afkomu IG," segir hún.