Greiningardeild Kaupþings banka hækkar verðmat sitt á Vinnslustöðinni í 4,3 krónur á hlut úr en heldur tólf mánaða markgengi óbreyttu í 4,7 krónum á hlut.

Gengi félagsins á markaði er 4,6 krónur á hlut, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. ?Við ítrekum fyrri ráðgjöf okkar um að fjárfestar minnki við hlut sinn í Vinnslustöðinni (Reduce),? segir hún.

?Verð á sjávarafurðum er hátt á erlendum mörkuðum um þessar mundir auk þess sem gengi krónunnar ætti að teljast ásættanlegt fyrir sjávarútveginn. Þetta mun skila sér í uppgjöri Vinnslustöðvarinnar á síðasta fjórðungi ársins, að mati Greiningardeildar, sem verður góður rekstrarlega séð.

Við eigum hinsvegar von á að neikvæðir fjármagnsliðir muni leiða til þess að tap verði á fjórðungnum uppá 79 milljarða króna og að afkoma ársins í heild verði rétt við núllið,? segir greinigardeildin.