Greiningardeild Landsbankans mælir með því að fjárfestar markaðsvogi bréf Kaupþings í vel dreifðu eignasafni. Hún metur markgengið á 1170 krónur á hlut en markaðsvirðið var 1.047 krónur á hlut við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá M5.

?Árið byrjar vel hjá Kaupþingi banka. Við gerum ráð fyrir myndarlegum hagnaði á fyrsta ársfjórðungi sem myndast að miklu leyti af gengishagnaði og vexti í þóknanatekjum,? segir greiningardeildin.