Skattrannsóknarstjóri Ísrael segir að ofurfyrirsætan heimsfræga Bar Refaeli liggi nú undir grun fyrir að hafa skotist undan skatti í Ísrael. Þá er hún grunuð um að hafa skotið undan milljónum dala í skatta sem hún ku hafa fengið að launum í útlöndum fyrir störf sín

Skattrannsóknarstjórinn sakar hana um að hafa sleppt því að nefna Range Rover- og Lexus-bifreiðar sem hún fékk að launum fyrir fyrirsætustörf sín.

Henni hefur verið sleppt úr haldi, en ekki fyrr en hún greiddi tryggingu sem hljóðaði upp á 193 þúsundir bandaríkjadala, eða því sem um nemur 24 milljónir íslenskra króna.

Fyrirsætan er þekkt fyrir störf sín sem kynnir X-Factor í Ísrael, auk þess sem hún hefur setið fyrir hjá merkjum á borð við Gap, Desigual og Escada.

Hún hefur þá einnig verið gift ísraelska milljarðamæringnum Adi Ezra, og í fortíðinni höfðu hún og Leonardo DiCaprio stungið nefjum saman.