Century Aluminum, eigandi Norðuráls, skilaði 8,3 milljóna dala hagnaði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Samsvarar það rúmum 900 milljónum króna. Á sama tíma í fyrra skilaði fyrirtækið 4,4 milljóna dala tapi.

Rekstrarhagnaður fyrirtækisins nam 187.000 dölum, en afkoman lyftist upp um einar 15,5 milljónir dala vegna hagnaðar á framvirkum- og afleiðusamningum. Í fyrra var þessi liður neikvæður um 5,8 milljónir dala.

Eignir Century námu í lok mars 1.791,1 milljón dala, skuldir námu 597,6 milljónum dala og eigið fé nam 992 milljónum dala.