Lloyds TSB, breski bankinn sem hyggst taka yfir starfsemi HBOS-bankans, sér nú fram á mögulega samkeppni um yfirtökuna. Í Sunday Times er greint frá því að Jim Spowart, sem stofnaði netbankastarfsemi HBOS, vinni nú að því ásamt erlendum banka að leggja fram yfirtökutilboð í HBOS.

Ekki er vitað hver erlendi bankinn er og Spowart hefur enn ekki lagt fram tilboð, en hefur átt viðræður við breska fjármálaráðuneytið um málið.

Reuters greinir frá þessu og hefur eftir talsmanni Lloyds að bankinn sé ákveðinn í að láta yfirtökuna ganga í gegn.