Mona Sahlin mun hætta sem leiðtogi sænska Jafnaðarmannaflokksins. Tilkynnti hún þetta á blaðamannafundi síðdegis í dag en flokksstjórnarfundur stendur nú yfir í Stokkhólmi.
Hávær krafa hefur verið innan jafnaðarmannaflokksins sænska að Sahlin víki úr leiðtogaembættinu en hún tók við af Göran Persson í byrjun árs 2007.