Félagið Skrímsl ehf., sem heldur utan um rekstur íslensku hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, var rekið með 18,5 milljóna krópa tapi árið 2015 þetta kemur fram í rekstrarreikningi félagsins fyrir það ár.

Hljómsveitin hagnaðist hins vegar um tæpar 38 milljónir árið 2014.

Eigið fé Skrímsl ehf. nam 42 milljónum í lok árs 2015, samanborið við rúmar 111 milljónir árið áður. Eignir félagsins í lok árs 2015 námu 164 milljónum en þær námu 510 milljónum í lok árs 2014.

Liðsmenn hljómsveitarinnar, sitja jafnframt í stjórn félagsins Skrímsl ehf. ákváðu að greiða sér 50 milljónir út í arð samkvæmt rekstrarreikningnum.