Félagar í grínhópnum Monty Python ætla að sameinast aftur á sviði. Þetta staðfestir Terry Jones, einn úr hópnum, í samtali við BBC .

„Já já, þetta er allt í alvöru. Við ætlum að koma saman og setja upp sýningu,“ segir Jones í samtali við BBC. „Ég hlakka mikið til. Ég vona að við græðum fullt af peningum. Svo mikið að ég geti borgað af húsnæðisláninu mínu,“ bætti hann við.

Búist er við því að endurfundirnir verði tilkynntir formlega á blaðamannafundi í Lundúnum á fimmtudaginn.