Matsfyrirtækið Moody‘s breytti í dag horfum á lánshæfismati Ríkissjóðs Íslands, Baa3 á erlendum og innlendum langtímaskuldbindingum, í stöðugar úr neikvæðum.

Frá þessu er greint á vef Seðlabankans en horfum fyrir lánshæfisþak erlendra skuldbindinga var einnig breytt í stöðugar úr neikvæðum.

Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar ríkissjóðs er P-3. Breytingin á horfum á rætur sínar að rekja til bættrar erlendrar lausafjárstöðu Ríkissjóðs Íslands vegna endurnýjunar fjármögnunar frá IMF og ríkisstjórnum Norðurlanda.

Sjá nánar á vef Seðlabankans.