Matsfyrirtækið Moody´s hefur tilkynnt að lánshæfiseinkunn Kaupþings sé til endurskoðunar vegna hugsanlegrar lækkunar. Lánshæfieinkunn Kaupþings nú er Aa3/C, en einkuninn var tekin til endurskoðunar í kjölfar tilkynningar Kaupþings síðastliðinn ágúst að bankinn hygðist yfirtaka hollenska bankann NIBC. Á sama tíma greindi Moody´s frá því að Baa1 lánshæfiseinkunn NIBC væri til endurskoðunar vegna hugsanlegrar hækkunar.