Matsfyrirtækið Moody’s hefur breytt horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar. Að mati Moody´s endurspeglar sú breyting þann árangur sem náðst hefur í að styrkja stoðir fyrirtækisins og að bæta fjárhagslegan styrkleika. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Sterk staða á orkumarkaði, hagkvæm endurnýjanleg orka og jafnt sjóðstreymi eru þeir þættir sem hafa jákvæð áhrif á einkunnargjöf fyrirtækisins. Þeir þættir sem koma hins vegar í veg fyrir betri einkunn eru há skuldsetning fyrirtækisins, fámennur hópur viðskiptavina, tenging við álverð í rafsölusamningum, gjaldeyrisáhætta og hlutfall breytilegra vaxta í lánasafni.

„Þetta eru góðar fréttir fyrir Landsvirkjun og mikilvægt skref í að bæta aðgengi fyrirtækisins að alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Þessi breyting kemur í framhaldi af jákvæðri þróun í rekstri og auknum fjárhagslegum styrkleika á undanförnum misserum. Landsvirkjun gerir ráð fyrir að þessi þróun muni halda áfram næstu árin,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

Moody’s bendir á að fjárhagsleg staða fari stöðugt batnandi og góður árangur sé að nást í að draga úr fjárhagslegri áhættu. Í mati fyrirtækisins er sérstaklega minnst á þann árangur sem náðst hefur við að draga úr álverðsáhættu með endursamningi við álver RTA í Straumsvík, með áhættuvarnarsamningum og með samningum við nýja aðila. Þá nefnir Moody’s jákvæð áhrif þeirrar vinnu fyrirtækisins við að draga úr gjaldmiðla- og vaxtaáhættu í lánasafninu.