Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investor Service tilkynnti í dag að Aa3 lánshæfiseinkunn Glitnis [ GLB ] og fjárhagslegur styrkleiki C væru til athugunar til mögulegrar lækkunar. Samhliða var skammtímaeinkunn bankans P-1 staðfest. Samkvæmt tilkynningunni eru lánshæfiseinkunnir stóru viðskiptabankanna þriggja nú til athugunar hjá Moody's.