Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfismat Orkuveitu Reykjavíkur (OR) úr Aa2 í A1. Þá verður fyrirtækið áfram til skoðunar með tilliti til hugsanlegrar lækkunar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá OR.

Þar kemur fram að helsta ástæða breytingarinnar á matinu er, að því er kemur fram í frétt Moody's, versnandi ástand á íslenskum fjármálamarkaði og versnandi efnahagsástand, sem endurspeglast í lækkun á lánshæfismati ríkisins úr Aa1 í A1.

Orkuveita Reykjavíkur býr því við sama lánshæfismat og íslenska ríkið eftir breytinguna í dag.

Sjá skýrslu Moody‘s. (pdf skjal)