Alþjóða matsfyrirtækið Moody´s lækkaði rétt í þessu lánshæfismat þriggja stærstu viðskiptabankanna Kaupþings [ KAUP ], Landsbanka [ LAIS ] og Glitnis [ GLB ]. Glitnir og Landsbankinn eru lækkaðir um tvö þrep en Kaupþing um eitt.

Einkunn Kaupþings fyrir fjárhagslegan styrkleika er lækkuð úr C niður í C-mínus og lánshæfiseinkunn úr Aa3 í A1.

Einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika Glitnis og Landsbanka er einnig lækkuð úr C niður í C-mínus en langtíma lánshæfismat bankanna beggja er lækkað úr Aa3  niður í A2.