Lánshæfismatsfyrirtækið Moody?s hefur í dag staðfest allar lánshæfismatseinkunnir Landsbankans sem óbreyttar að því er kemur fram í tilkynningu bankans. Tilkynning Moody?s fylgir í kjölfar kaupa bankans á verðbréfafyrirtækinu Bridgewell.

Lánshæfismatseinkunnir Landsbankans eru: til langs tíma Aa3, skammtíma P-1, fjárhagslegur styrkleiki C og horfur stöðugar.