Alþjóðlega matsfyrirtækið Moodys Investor Service hefur staðfest lánshæfiseinkunnir Kaupþings banka hf. í tengslum við kauptilboð bankans í Singer & Friedlander í Bretlandi. Einkunn fyrir skuldbindingar til langs tíma er A1 og fyrir skammtímaskuldbindingar Prime-1. Einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika er C+.