Matsfyrirtækið Moody‘s staðfesti í gær lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands.
Staðfestar voru einkunnirnar A1 fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt og P-1 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt.
Einkunnirnar eru í skoðun vegna hugsanlegrar lækkunar.
Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands.