Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur staðfest lánshæfismatseinkunn langtímaskuldbindinga Kaupþings banka sem A1, einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem P-1 og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem C-.

Horfur eru stöðugar.

Staðfesting Moody's fylgir í kjölfar endurmats á lánshæfi ríkissjóðs í Aa1 úr Aaa.