Matsfyrirtækið Moody's Investors Service tók í gær lánshæfiseinkunn Íbúðalánasjóðs, Aa1, til skoðunar vegna hugsanlegrar lækkunar.

Í tilkynningu kemur fram að þessi aðgerð er til komin vegna ákvörðunar Moody's um að taka íslensk ríkisskuldabréf og bankainnstæður í erlendri mynt til athugunar vegna mögulegrar lækkunar.