Moody's Investors Service tilkynnti á fimmtudag að það hefði veitt tveimur fyrstu útgáfum Glitnis á sérvörðum íslenskum skuldabréfum lánshæfismatið Aaa.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glitni.

Þessir skuldabréfaflokkar eru gefnir út undir rammasamningi um útgáfu sérvarinna íslenskra skuldabréfa, stærð rammasamningins er að fjárhæð 100 milljarðar króna.

Útgáfa 1: 16.000.000.000 króna sérvarin skuldabréf til ársins 2050 (ISIN XS0354719014)

Útgáfa 2: 40.000.000.000 króna sérvarin skuldabréf til ársins 2051 (ISIN XS0354719527)

Sérvörðu skuldabréfin eru útgefin beint af Glitni og lúta veðheimilda sem felast í safni íslenskra húsnæðislána.