Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins sagði í Vikulokunm á Rás 2 fyrr í dag að launahækkanir í síðustu kjarasamningum sem nú eru að renna út hafi verið innistæðulausar þar sem mörg fyrirtæki hafi ekki ráðið við þær. Nefndi hún að komið hefði til fjöldauppsagna hjá mörgum fyrirtækjum og sem dæmi hafi prentsmiðjan Oddi hætt bókaprentun. „Það er ekkert sjálfgefið að störf séu hér á landi. Þegar við missum frá okkur samkeppnishæfnina þá erum við að missa störf.

Þá bennti Guðrún einnig á að miklar kjarabætur hafi fylgt síðustu samningum. „Laun hafa hækkað gríðarlega mikið á þessum samningstíma sem nú er. Kaupmáttur launþega er 25 prósent hærri en hann var 2015. Þetta er staðreynd. Kaupmáttur lægstu launa er 30 prósent hærri en hann var 2015.“