Uppgjör bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley fór langt fram úr væntingum greiningaraðila. Hagnaður félagsins nam 75 sentum á hlut en heildar hagnaður nam 8,9 milljörðum dala. Greiningaraðilarnir höfðu búist við 59 sentum á hlut. Fyrirtækið skilaði 9,74 milljarða hagnaði á sama tíma í fyrra.