Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,6% í desember en ef spáin gengur eftir mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 8,6% í 7,7%.

Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að þrátt fyrir að gengi krónu hafi verið nokkuð stöðugt undanfarna mánuði séu enn að koma fram í verðlagi áhrif gengishrunsins frá miðju ári 2008, sér í lagi í þeim vöruliðum sem búa við tiltölulega hægan veltuhraða eða árstíðabundið vöruframboð.

„Þannig gerum við ráð fyrir að liðir á borð við húsgögn, heimilisbúnað, fatnað og rafeindatæki til heimilisnota hækki um eitt til tvö prósentustig á milli mánaða,  en töluverð verðhækkun hefur verið að koma fram á slíkum innfluttum vörum á síðustu mánuðum,“ segir Greining Íslandsbanka í Morgunkorni.

Þá segir greiningardeildin að margt hafi orðið til þess að tefja áhrif falls krónu undanfarin misseri á verðlag varanlegra og hálfvaranlegra neysluvara. Snarminnkandi eftirspurn eftir slíkum vörum hafi hægt mikið á veltuhraða þeirra, auk þess sem gera megi ráð fyrir að söluaðilar hafi í lengstu lög vænst þess að krónan styrktist að nýju og beðið með að hleypa hærra innkaupsverði að fullu yfir í útsöluverð.

„Teljum við að vegna ofangreindra þátta sé enn eftir nokkur verðhækkun á ýmsum vöruflokkum vegna gengisfalls krónu,“ segir í Morgunkorni.

Þá segir greiningardeildin einnig að á fyrsta ársfjórðungi næsta árs megi búast við töluverðri hækkun vísitölu neysluverðs. Þar vegi þungt hækkun óbeinna skatta í janúar og mars, sem Greining Íslandsbanka telur að muni í heild hækka vísitöluna um 1,4% á fjórðungnum. Þá bætist við gjaldskrárhækkanir sem jafnan má eiga von á um áramót.

„Við gerum ráð fyrir að útsöluáhrif verði svipuð á fjórðungnum og verið hefur undanfarin ár,“ segir í Morgunkorni.

„Þannig spáum við að föt og skór muni lækka um 8% að jafnaði í janúar en hækka að nýju um ríflega 7% í febrúar og svo enn frekar í mars. Alls teljum við að VNV muni hækka um 2,8% fram til marsloka miðað við síðustu mælingu í nóvember. Verðbólgan mun því líklega hækka á þessu tímabili og ná hámarki í 9,5% í mars á næsta ári ef spá okkar gengur eftir.“

Sjá nánar í Morgunkorni.