Innlend velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum var 8% minni að raunvirði á tímabilinu júlí til ágúst síðastliðinn samanborið við sama tímabil í fyrra. Að nafnvirði var samdrátturinn tæplega 1%.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka en þar segir að heldur sé að draga úr samdrættinum í hagkerfinu á þennan mælikvarða en til samanburðar mældist hann 16% að raunvirði og 7% að nafnvirði á tímabilinu maí til júní samanborið við sama tímabil í fyrra.

Greining Íslandsbanka segir að mikil breyting hafi orðið á umsvifum í hinum ýmsu atvinnugeirum hér á landi frá því kreppan skall á fyrir ári síðan. Útflutningsgreinar hafi staðið allvel af sér storminn en þær greinar sem byggja á innlendri eftirspurn eigi hins vegar við ramman reip að draga nú um stundir.

Þá kemur fram að samdráttur í innlendri eftirspurn undanfarið endurspeglast skýrt í tölum Hagstofu. Þó hefur hægt nokkuð á samdrættinum. Velta í bílasölu og tengdum greinum skrapp saman um nærri fjórðung milli ára í krónum talið. Veltan í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð skrapp að sama skapi saman um 45% á milli ára.

Smásöluvelta jókst hins vegar í krónutölu um 7% í júlí og ágúst frá sama tíma í fyrra, sem jafngildir um 1% raunlækkun. Sams konar þróun átti sér stað í sérhæfðri þjónustu af ýmsu tagi. Þá skrapp velta í tómstunda-, menningar- og íþróttastarfsemi saman um 8% að krónutölu á milli ára.

„Ofangreindar tölur endurspegla þau umskipti sem orðið hafa í hagkerfinu frá þensluskeiðinu um miðjan áratuginn,“ segir í Morgunkorni.

„Líklegt er að geirar tengdir innlendri eftirspurn á borð við bílasölu, umboðs- og heildverslun og ýmsar greinar smásöluverslunar muni áfram eiga undir högg að sækja, en hagur útflutningsgreina gæti vænkast frekar á næstunni ef það gengur eftir sem virðist vera að koma fram í erlendum hagtölum: Að nú sé botninum náð í kreppunni á heimsvísu og að eftirspurn erlendis muni taka við sér á komandi ársfjórðungum.“

Sjá nánar í Morgunkorni.