Tekjur Mosfellsbæjar á síðasta ári námu alls 9.105 milljónum,  launakostnaður 4.151 milljónum og annar rekstrarkostnaður 3.640 milljónum.

Framlegð nemur því 1.314 milljónum en að teknu tilliti til fjármagnsliða er rekstrarafgangur A og B hluta 380 milljónir. Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða nam 977 milljónum eða tæplega 11% af tekjum.

Skuldaviðmið bæjarins 108,5%

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu, en ársreikningurinn var tekinn til umræðu í bæjarstjórn í gær, en hann verður tekinn síðari umræðu 19. apríl.

Veltufé frá rekstri er 1.109 milljónir eða rúmlega 12% af tekjum. Eigið fé í árslok nam 4.681 milljónum og eiginfjárhlutfall 29,4%. Skuldaviðmið er 108,5% sem er vel innan þess 150% hámarks sem kveðið er á um í lögum.

Lóðatekjur bættu stöðuna meir en búist var við

Rekstrarniðurstaða A og B hluta er talsvert betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Það má helst skýra með hærri óreglulegum tekjum vegna lóðasölu og byggingarréttargjöldum og lægra verðlagi en gert var ráð fyrir, sem hefur áhrif á fjármagnsliði.

Framundan er áframhaldandi uppbygging innviða í Mosfellsbæ. Á síðustu árum hefur verið verið lögð áhersla á uppbyggingu framhaldsskóla, íþróttahús, hjúkrunarheimili og stórbætt aðstaða fyrir félagsstarf eldri borgara.

Stærsta verkefnið sem sveitarfélagið hefur með höndum nú er bygging Helgafellsskóla. Það er leik- og grunnskóli í nýbyggingarhverfi í hraðri uppbyggingu sem áætlað er að muni kosta um 3500 milljónir á næstu tíu árum.

Fara yfir 10 þúsund íbúa á árinu

Íbúar Mosfellsbæjar voru 9.783 um síðustu áramót og hafði fjölgað um 3% á milli ára sem er í samræmi við spár þar um. Gert er ráð fyrir að íbúafjöldinn fari yfir 10 þúsund á þessu ári.

Mosfellsbær er sjöunda fjölmennasta sveitarfélag landsins og þar störfuðu 619 starfsmenn í 509 stöðugildum á árinu 2016.

Rúmlega helmingur fer til fræðslumála

Fræðslumál eru langstærsti málaflokkurinn en til hans runnu 3.604 milljónir eða 51% skatttekna. Til félagsþjónustu var veitt 1.382 milljónum og eru þar meðtalin málefni fatlaðs fólks.

Íþrótta- og tómstundamál eru þriðja stærsta verkefni bæjarins en til þeirra mála var varið um 803 milljónum. Samtals er því 82% skatttekna Mosfellsbæjar varið til fræðslu-, félagsþjónustu, íþrótta- og tómstundamála.