Mosfellsbær hefur gefið út nýjan skuldabréfaflokk upp á 600 milljónir króna að nafnverði. Lánið er verðtryggð jafngreiðslubréf til 21 árs með greiðslu afborgana og vaxta á 6 mánaða fresti. Skluldabréfaflokkurinn var seldur á 3,05% ávöxtunarkröfu. Samkvæmt skilmálum er hægt að stækka flokkinn frekar.

H.F. Verðbréf hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.