Moss Bros er í þann mund að skipa nýjan stjórnarformann eftir að 40,2 milljóna punda yfirtökutilboð Baugs í félagið féll niður.

Núverandi stjórnarformaður félagsins er Keith Hamill en samkvæmt frétt Times hefur Barry Gibson verið boðið starfið.

Gibson þessi er fyrrum yfirmaður smásölu hjá félaginu BAA, sem á m.a. Heathrow flugvöllinn. Hamill er sagður vilja finna eftirmann sinn fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður 25. júní.

Verði Gibson skipaður stjórnarformaður bíður hans það verðuga verkefni að fá hluthafa Moss Bros til að leggja ágreining sinn vegna mögulegrar yfirtöku til hliðar og einbeita sér að því að efla félagið, að sögn Times.